Er þessi síða að geispa golunni? Ég bara veit það ekki...
Ég studdi líf þessarar síðu að fullu en síðan smitaðist ég af mæspeis bakteríunni og verð að viðurkenna að hið litla líf þessarar síðu hefur ekki verið efst á blaði hjá mér langalengi. Reyndar er ég alltaf með hana sem Home í vafranum mínum svo ég fyllist alltaf pínulítilli sektarkennd þegar ég opna netið. Svona eins og dauði síðunnar geti skrifast á mig.
Vá, ég sé fyrir mér legstein Okaasan:
Hér hvílir:
www.blog.central.is/okaasan
f. 2005 – d. 2008
Hvíli Okaasan í friði og berjum öll Klöru fyrir að vera ekki duglegri að blogga.
Sjitt... ætli ég fái ekki martraðir útaf þessu.
Kannski næ ég mér svo aldrei fullkomlega og verð að fara til sálfræðings, eða í hugræna atferlismeðferð, eða í nálastungur, eða til sjúkranuddara, eða til Heller-tæknis, eða í svæðanudd, eða til næringarfræðings, eða í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, eða í sundleikfimi, eða í heilun, eða í raflostmeðferð, eða í sogæðaörvun, eða í detox með Jónínu Ben, eða bara ég veit ekki hvað.
Kannski er svarið við þessum erfiðleikum að fara bara og drepa síðuna? Nei, það held ég ekki. Kannski bara að vera duglegri að blogga? Æ, við vitum öll að það væri bara lygi!
Ég bendi þá bara öllum fréttaþyrstum okaasan-aðdáendum á mæspeisin okkar... þau eru þvílík guðsgjöf
Já! Ég viðurkenni þetta! Ég, Klara Guðmundsdóttir, hef látið glepjast af fögrum fyrirheitum mæspeis heimsins og er orðin háð. ÉG ER MÆSPEIS FÍKILL. Þetta hélt ég aldrei að myndi gerast. Ég var einn harðasti andstæðingur mæspeis sem fundist hafði. En – ég get ekki útskýrt þetta, ég bara lét plata mig og nú er ekki aftur snúið. Með orðum Rögnu Margrétar okaasan-lims og kærrar vinkonu: ,,Ég elsketta!“
Annars er ég bara hálf-rúmföst þessa dagana. (Sem reyndar útskýrir nýtilkomna hæfileika til bloggs!) Ég fór í krossbandaaðgerðina frægu á fimmtudaginn var og hef þurft að hafa hægt um mig síðan. Mér til mikillar gleði. (Engin kaldhæðni á ferðinni þar, hohoho...)
Þess vegna vil ég ítreka að ALLIR ERU VELKOMNIR Í HEIMSÓKN, því ég hef ekki mikið að gera og mundi elska slík innlit.... (Hringið bara svona korteri áður svo ég geti troðið mér í föt og sagst hafa verið að þrífa eða eitthvað svo enginn fatti að ég liggi bara uppí sófa í stuttbuxunum og mauli kex...)
Takk fyrir í dag og velkomin aftur hvenær sem er.
Klara.
(www.myspace.com/klarara)